·۰•●The Gellz●•۰·

Griðastaður Fallega Fólksins!...

20.03.2008 02:13:29 / lea

langt síðan síðast

vá, langt síðan það var síðast bloggað.
mikið búið að gerast.
Kristín að vinna með gamla fólkinu á hrafnistu í matsalnum og segir að það sé svaka stuð.
ég að vinna með brjálæðingunum í arnarsmára (leikskólinn arnarsmára) það er reyndar alveg ágætis vinna er að vinna 8-16 og ekkert um helgar svo ég kvarta ekki, nema það að síðan ég byrjaði er ég nánast alltaf veik, hef ekki orðið svona mikið veik í mörg ár enda eru leikskólar bara sýklabæli og maður smitast af öllu.  Er í fjarnámi með vinnunni og er þvílíkt að dúxa, er búin með 3 próf og fékk 8,5.. 9,5 og svo 10...ekkert smá stolt.
Þess á milli er ég á djamminu (mikið um það þessa dagana) og lenti í því á síðasta djammi að símanum mínum var stolið og það munaði litlu að ég myndi berja einhvern.
Talandi um að berja einhvern lenti ég á þvílíkt skemmtilegu djami í febrúar þegar ég fór til Kristínar og Fúsi kom og ég, hann og Matta tókum taxa í bæinn á einhvern stað sem ég man ekki hvað heitir og svo eftir að hafa dansað upp á stól og dottið niður ákvað ég að rölta mér á glaumbar að sækja kristínu en hitti fyrir utan gaukinn tvo færeyjinga, og þar sem ég er 1/8 færeyjingur ákvað ég að taka þá að mér og dröslast með þá á eftir mér út um allan bæ, inn og út af stöðunum, ég var að leita að einhverjum.  Stuttu seinna fór annar þeirra að röfla yfir því að fá ekki að setjast niður og drekka bjór, ég var ekki alveg sátt við það því það var nú ég sém réði öllu :lol: og hann fór eitthvað að rífa sig þannig ég lamdi bara gaurinn með þeim afleiðingum að hann fékk glóðurauga og eig blóðuga hnúa.  Hann hætti þá að tuða og vini hanns fannst þetta alveg brjálæðislega fyndið.  Þá loksins hitti ég svo Kristínu á Hressó og sagði við hana "hæ, þetta eru færeyjingarnir mínir"... og svo máttu þeir setjast niður og sötra bjór, þá var ég líka orðin mjög þreytt og rölti mér af stað í leigubílaröðina og svo beint heim að sofa...
Greyið gaurarnir koma örugglega aldrei aftur til Íslands út af crazy ljósjærðu gellunni sem lamdi annan þeirra fyrir að vilja bjór... hehehe good times
Nú er planið bara að fara norður um páskana að hjóla og svo heldur maður bara í bæinn að vinna aftur.
þangað til seinna, yfir og út
Lea

» 0 hafa sagt sína skoðun

22.08.2007 16:04:59 / kristin

Skólinn...

Jæja nú er víst haustið komið og ótrúlegt en satt þá ákvað ég að fara í skóla!

Ekki nóg með það að ég sé komin aftur í skóla... heldur eru Lea og Jóa líka komnar aftur í skóla!!

OG JÁ TAKK FYRIR!!!

ALLAR 3 Í SAMA SKÓLAN!!!

IÐNSKÓLAN Í REYKJAVÍK

Fyndnast er að við sóttum allar um án þess af vita að hinar höfðu sótt um, reyndar svo stuttu seinna komumst við Lea að því að við værum báðar að fara en svo í morgun á vappinu um skólagangana rekst ég á Jóu pæju!

Erum reyndar allar á sitthvorum brautunum: Ég á Tölvubraut, Lea á Upplýsinga og Fjölmiðlabraut og Jóa á Almennri Braut :)

Hrafnhildur skvísa er víst orðin stúdent og er núna komin inn í Bændaskólan á Hvanneyri og við gætum ekki verið stoltari af henni :* Þannig að núna er það bara hún Helena elskan okkar sem þarf að drífa sig að skella sér í námið ;)

Anywhoooos þá nenni ég ekki að blogga meira... fannst ég bara verða að koma þessu til skila!

Kv. Kristín Heiða


» 0 hafa sagt sína skoðun

10.08.2007 14:30:18 / kristin

Eintóm Hamingja ;)

Jæja.. komið að mér að blogga ;P núna 18 júlí síðasliðin eignaðist ég litla systir!!! :haha::haha: Hún er algjört æði litla prinsessan!

Já við gætum ekki verið meira hamingjusöm með hana :) Enda algjört rúsínurassgat :)

-**********************-

Svo er víst að koma helgi aftur núna.. vikan er búin að líða þvílíkt hratt!! 8| Ég var svo heppin að ég var að vinna alla síðustu helgi....:$ En við ákváðum að fara bara í útilegu eina nótt á sunnudagskvöldinu í staðinn! Við Daníel fórum með Geir vini hans og hittum Ingu, Atla, Bigga, Steina og Haffa á Hvolsvelli þar sem þau voru í fullu fjöri haugafull í skotbolta :D og það var bara mjög hressandi hehehe! Allavega hérna eru nokkrar myndir... var samt svo dimmt þannig að þær heppnuðust ekkert allt of vel flestar :^)































Jæja segjum þetta gott í bili :) svo eru fleiri myndir inn á síðunni minni www.123.is/kristinheida ;)

kv. Kristín Heiða


» 1 hafa sagt sína skoðun

25.07.2007 11:37:38 / hildur

útilega, rigning, fiður

jæja ég virðist vera sú eina sem bloggar hérna hehe. úff hvað veðrið er búið að vera spes. Við jón þór fórum í útilegu síðustu helgi í Hellisskóga með Völu og Fúsa og Jón Hirti litla sem ég var næstum buin að stela. við fengum rosa gott veður og allt, svo röltum við "hjónin" á klósettið og sjáum við bara ekki odd og einar sem eru eiginmenn frænkna minna, laufeyjar og helenu. laufey og oddur eiga rottweiler tík sem við pössum oft, allavega þá var þetta svo surprise útilegu partý fyrir laufey því hun átti afmæli á sunnudeginum. þau fjölskyldan fóru á hestbak á laugardeginum með krakkana sína aþenu (5) og baldur (2) og aþena tilkynnti það að hun ætlar að verða hestakona og einhvernveginn var hun buin að eignast helminginn í folaldinu minu sem fæðist á næsta ári hehe :lol:. þetta var svaka stuð gítar, kampavín og jarðaber.

svo á sunnudeginum pökkuðum við saman tjaldvagninum og þegar við erum buin að öllu þá kemur þessi líka svakalega rigning sem er eins og hellt úr fötu og við MJÖG fegin að vera búin að pakka. ég sagði við jón þór að að kötturinn sem var einn heima í einn og hálfan dag yrði örugglega mjög þreytandi og myndi pottþétt koma með fugl eða mús heim og viti menn á mánudeginum var komið fullt af fiðri inn í svefnherbergi ojojoj :^)

 

adios


» 0 hafa sagt sína skoðun

09.07.2007 10:38:50 / hildur

dadara

jæja þá er alveg að fara að koma að aðgerðinni minni :( ég er alveg að guggna á því, ég þori ekki að láta svæfa mig :S ég er svo mikill kjúklingur þó það sé bara verið að fara að skera í lappirnar á mér.

Annars er allt annað ágætt að frétta, við skötuhjúin fórum í bústað á lau og fengum hrikalega gott veður um kvöldið og næstum 30 stiga hita á sunnudeginum. Magndís frænka kom í mat á laugardagskvöldinu sem var mjög gaman, spjölluðum alveg útí eitt.

svo ætla ég að hvetja fólk sem er að skoða síðuna að kvitta í gestabókina!!!

 

Adios 8)


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.06.2007 10:41:35 / hildur

úff veses

hvað er verra en að vakna upp af martröð? jú vakna upp af martröð og kyngja rakvélablöðum, það var þannig í morgunn þegar ég vaknaði með bullandi hálsbólgu :( sem betur fer er apótek á fyrstu hæð í húsinu þar sem ég vinn (domus medica).

Svo var bæklunarlæknirinn minn að hringja í mig í gær og tilkynnti mér það að ég þyrfti að fara í aðgerð á fótunum því þeir eru ekki lagi, það þarf að spretta upp á mér einhverjar sinar eða einhvað og þetta þarf að gerast a.s.a.p og það ég þarf helst að taka mer frí í tíu daga eftir þetta en það er ekki hægt því ég er í afleysingum svo ég verð bar að jafna mig eins og ég get á 2 dögum :(  helvítis vesen.

óskið mér góðs gengis

adios


» 2 hafa sagt sína skoðun

07.06.2007 15:40:49 / hildur

inntökupróf :D

jemin það er bar allt að gerast. vinkona min hún birna sæta sendi mér sms um að Hólaskóli hefði hringt og beðið hana að koma í inntökupróf í júni ég var rosa spennt en pínu abbó af því að það var ekki búið að hringja í mig. svo fer ég í mat og um leið og ég labba inní kringluna hringir síminn og það eru hólar að boða mig í inntökupróf og nú erum við birna að fara saman norður 20 júni að spreyta okkur svo óskið okkur góðs gegni þvi þetta er draumur okkar beggja og væri ekki æðislegt að komast inn og það með einni af bestu vinkonu sinni :D þetta er ennþá að sínka inn, ég er að rifna af  kæti :haha::haha::haha:

 

Adios 8)


» 0 hafa sagt sína skoðun

01.06.2007 14:55:47 / hildur

óvæntur glaðningur :D

jæja þa er ég búin í skólanum og svona og þá getur maður haft meiri tíma til að blogga´.

Ég útskrifaðist síðasta laugardag með pompi og prakt og var mjög gaman, fyrir utan ömurlega leiðinlega ræðu sem már rektor hélt um peningamál skólans. svo var farið í myndatöku sem var mjög gaman því mér finnst svo gaman að láta taka af mér myndir, tíhí ;) svo var veisla kl 5 sama dag. þar var fullt af skemmtilegu fólki og góður matur og flottar gjafir sem ég er órúlega ánægð ´með. svo hélt pabbi rosa flotta ræðu og fólk svona aaawwwww svo hélt ég ræðu, var bara þakka mömmu og pabba fyrir allann stuðinginn og veisluna og gat ekki klárað hana því við mamma fórum að skæla og þá fór mömmu fjölskylda að skæla líka, voða sætt, (mömmu fjölskylda er mjög tilfinngingalega viðkvæm) svo var ég búin að þurkka tárin og sagði fólki að það gæti haldið áfram að borða en þá sagðist jón þór vilja segjar nokkur orð sem hann gerði og var voða sætt og svo fór minn bara niður á hnén og bað mig að trúlofast sér og ég byrjaði aftur að skæla og flestir í veislunni bara hehe og ég sagði auðvitað já og við erum bara ótrúlega hamingjusöm :D

adios 8)


» 5 hafa sagt sína skoðun

08.05.2007 14:14:43 / lea

segi upp

jæja, það er ekkert að gerast hérna, upp í 50 manns sem skoða á hverjum degi samt engin komment eða neitt, ég nánast sú eina sem tjái mig eitthvað og Kristín stundum... þannig að ég ætla að segja upp stöðu minni hérmeð þangað til eitthvað fer að gerast!!!

Takk fyrir mig..Lea ;)


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.04.2007 23:38:19 / lea

jæja

jæja, þá er maður búinn að finna sér nýtt hobby... ég var að kaupa mér enduro hjól í dag og fæ það á morgun.  Lítill 480.000 kall, glænýtt BetaRR-125cc hjól, eins og þetta nema rautt, geggjað töff

 

var svo að panta mér allt outfittið á netinu, hjálm, buxur, treyju, skó, hanska og sokka í stíl:haha: get ekki beðið.  Svo er það bara að fara um helgina norður að vígja trylitækið.  Fæ reyndar ekki fötin fyrr en eftir viku-10 daga en þangað til verð ég með racer hjálminn minn, brynjuna sem ég fékk með hjólinu og svo í buxum og treyju af Unnsteini.  Annað í fréttum er að Unnsteinn er að fara að keppa á sínu Husaberg 450cc hjóli á keppninni á Klaustri í maí með bróðir sínum sem er á eins hjóli og hann, 6 tímar sraight í keyrslu.  Svo á morgun er Ingólfur Þór að byrja í ungbarnasundi, ég get ekki beðið það verður æði.  En þangað til síðar

I'm out...Lea


» 1 hafa sagt sína skoðun

27.03.2007 11:15:57 / joa

Hittingur

Jæja ég og Kristín vorum að ræða saman og okkur finnst tímabært að við förum allar að hittast....En þannig er mál með vexti að ég er ekki laus fyrr en eftir 22 apríl....yeah I know i suck eeen hvernig finnst ykkur að við plönum eitthvað bara geggjað langt fram í tímann og þegar við vitum vinnuplönin okkar??? Þá komumst við líka frekar allar og höfum nægan tíma til að plana þetta:) Are u game?

Okkur datt nokkrar hugdettur í hug.....

*Karioki kveld á ölver

*út að borða á einhverjum stað

*leigja einhvernstað saman og halda heljarinnar partý

*Heimapartý

*sumarbústaður

 

Ef þið hafið einhverjar fleiri hugdettur...commentið:)

Bytheway....hefur einhver séð Hrafnhildi.....hef ekki séð hana síðan 97!

hihihi láttu nú heyra í þér elskan mín!


» 2 hafa sagt sína skoðun

25.03.2007 08:07:25 / joa

My Confessions!!!

Jæja þar sem þið eruð nú næstum allar komnar út úr skápnum ætla ég bara vera með...if u can´t beat them join them;)

*Ég heiti fullu nafni Jóhanna Guðríður Gilsdóttir

* var einu sinni íslandsmeistari í samkvæmisdönsum híhíhí

* á mér luralegt áhugamál....dulspeki;þ

* Ég eelska harðfisk með smjöri

* uppáhalds liturinn minn er svartur....becoz it´s black

*Ég er með skrítinn tónlistarsmekk sem enginn skilur og er sjálf voðalega misskilin

*Kaldhæðni er mitt thing....fólk er oft móðgað út í mig

* Ég get hreinlega ekki ákveðið mig.....

* Ég er háð myspace....

*Hef keppt í 2 fegurðarsamkeppnum....garg

* Ég fell oftast fyrir nördum... sérstaklega nördum með gleraugu...algjörlega minn veikleiki

* fell líka fyrir föla drungalega gaurnum....hann er líka heitur

*ís læknar allt

*Ég á ábyggilega aldrei eftir að endast í sambandi ...ólýkt ykkur öllum

*Uppáhaldsdrykkurinn minn er vatn!

*næst uppáhalds er bjór;Þ

*Ég sem lög og texta og enginn veit af því....

*Ég ferðast alltaf með litla bók til að skrifa í....mjög hrædd um að einhver ræni henni íík!

*Ég hef aldrei farið til akureyrar

*Ég tók bílprófið 20 ára!

*Ég er ömurleg og leik mér að tilfinningum annara......no joke I´m a total jerk

*Ég kann ekki að segja nei:/

*Uppáhaldslagið mitt er colourblind með counting crows....út af því að það var í cruel intensions og ég finn mig geðveikt í því

*Ég var geggjað skotin í Arnold Swartsenegger þegar ég var 4 ára

*líka x-files gaurnum.....

*Vildi vera vampíra þegar ég var lítil.... var rekin heim ur skolanum fyrir að bíta alla....

*Var einu sinni með svartan drengjakoll....foreldrar vinkvenna minna vildu ekki lengur að ég hitti þær...héldu að eg væri anorexiu dópisti...isss

*Elska "John Tucker must die" get horft á hana aftur og aftur og líka "clueless" uppáhalds mynd mín án efa er samt "breakfast at tiffany´s"

*Er teiknimyndafíkill

*Eyði næstum 100þus kalli a manuði i föt....og versla bara í all saints og berty shoe studio

*dæmi alltaf gæja eftir fyrsta kossinum og skónum....

*það ætti að banna lítil ....u know what oj

*Vil hafa hitting bráðlega!!!

jææææjaaaa vil ekki segja öll mín dirty little secret´s hér......

 

Jóa´s out!

 

 

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 09:00:58 / kristin

Jááá okei þá Lea elskan ég skal koma út úr skápnum fyrir þig ;)

Jæja hún Lea heimtaði að ég færi að tjá mig á persónulegu nótunum hérna um sjálfa mig þannig að jaaa látum okkur sjá hverju ég vill deila.. ;)

  • Ég á YNDISLEGAN kærasta sem ég dýrka og dái út af lífinu, hann Daníel Már minn ;)
  • Ég er með óútskýranlega strætófóbíu og á mjög bágt með að taka strætó og þegar neyðist til að nota þann ferðamáta þá svitna ég öll og verður flökurt og svimar og þarf oftar en ekki að fara út á bandvitlausum stoppustöðvum :S
  • Ég flutti að heiman þegar ég var 18 ára...
  • Ég á 3 yngri systkini og er að fara að eignast það fjórða núna í júlí :)
  • Ég elska dýr og dýrka að vera í sveitinni :)
  • Ég er mesti klaufi í heimi og er venjulega með ótal marbletti hist og her sem staðfesta það!
  • Ég var rekin úr sumarbúðum þegar ég var krakki af því ég var svo óþekk:^)
  • Ég fór sem au-pair til þýskalands þegar ég var 15 ára og var þar í tæpt ár :P
  • Ég er mjööög mikið tölvunörd og er með gríðarlega tækjadellu...
  • Ég HATA stafsetningarvillur og þoli ekki þegar fólk segir hluti eins og: talva og mér hlakkar!!!

allavega... þá dettur mér lítið annað í hug eins og er.... veit varla hvað ég á að segja haha... en jámm ég heimta að þið gerið þetta líka og tek undir að fólk þarf að vera iðnara við að kommenta hérna ;) gaman að sjá hverjir skoða :P

kv. Kristín Heiða :)


» 1 hafa sagt sína skoðun

22.03.2007 17:24:49 / lea

komið út, litlu skápahommarnir mínir

jæja, ég virðist vera sú eina sem er eitthvað virk hérna.  Kristín reindar skreið út úr runnanum sínum til að koma með eina færslu annars held ég að hinar séu bara týndar og tröllum gefnar!!!

 

Annars þá langar mig að allir komi út úr skápnum, ég skal byrja:

-ég á son sem ég elska út af lífinu

-ég á litla rykmoppu sem ég kalla Bangsa og hann er algjör karlfuskur

-ég hef einu sinni stolið úr matarverslun og var bustuð

-ég skipti einusinni um verðmiða á hjólabuxum á öskudaginn '99 úr 350kr. í 100kr. (ég veit nýsk)

-ég elska bjór en get ekki drukkið hann með mat

-ég er borgarbarn í húð og hár en elska sveitina og vil helst vera þar (og hafa verslunarmiðstöð á staðnum)

-ég er með fullkomnunaráráttu á hæsta stigi

-ég þoli ekki líkamann minn því hann er ekki fullkominn en nenni ekki að gera neitt í málinu

-ég er pabbastelpa nr.1

-ég myndi vera með dýragarð heima hjá mér ef ég gæti (eins og í ace ventura, nema með ca. 10 hunda og ketti líka)

-ég er með félagsfælni en get samt ekki verið ein

-ég elska mömmu mína og pabba mest fyrir utan Ingólf Þór

-ég sakna hádegismatasins sem var alltaf á sunnudögum hjá mömmu og pabba og myndi flytja aftur til þeirra fyrir hann ef það stæði til boða

-Ingólfur Þór, sonur minn bjargaði lífi mínu þegar hann var ekki enn fæddur(á meðgöngu semsagt)

Jæja núna er komið að ykkur litlu rúsínurnar mínar who ever you are and where ever you are!!!

Og eitt enn, það má alveg kommenta og skrifa í gestabók svo VIÐ vitum hver ÞIÐ eruð, sem eru að skoða;)

gonna love you long time...

Lea


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.03.2007 08:49:16 / kristin

*Sweet*

Jæja þá ætli ég gefi mér ekki tíma í smá blogg núna þar sem ég hef nákvæmlega EKKERT að gera! Allavega þá vakin í kremju klukkan hálfsex í morgun! Þá hafði Daníel ákveðið að hans hluti af rúmminu væri ekkert alveg nógu góður og velti sér bara ofan á mig og byrjaði að hrjóta framan í mig! Æði! Þannig að mín hundskaðist bara á lappir og skrapp yfir til mömmu gömlu til að komast á netið... :P En já anywho þá var helgin sem var að líða mjög fín :) Var bara róleg á föstudagskvöldinu en svo skellti mín sér sko á djammið á laugardaginn með henni Leu elsku!!! :D Byrjuðum kvöldið hjá honum Odd sem hafði það markmið að hella okkur fullar! Tókst ágætlega hjá honum haha! Svo þegar löggan var búin að koma nokkru sinnum og nágranninn var búinn að taka rafmagnið af þá ákváðum við að kannski væri kominn tími til að drattast í bæinn :) Við byrjuðum á Sólon þar sem við hittum alveg bunch af fólki eins og Stebba, Steina, Evu, Jónka og eitt stykki bliiiiindfulla Hönnu :) hehe dúlla :) Svo hittum við hann Sigfús sem var kominn með tvær norskar gellur sem hann átti erfitt með að gera upp á milli að taka með sér heim Svo hittum við alveg eldgamla kunningja okkar þá Helga, Baldur og Gumma frænda! Sem við höfum ekki séð í alveg laaaaangan tíma :) Fékk alveg flashback síðan ég var 17 ára haha! En já svo skunduðum við á Pravda þar sem við hittum fleira fólk eins og til dæmis alveg rúlllandi ofurölvan hana Halldóru og Emmu.. Svo var Sara sæta þar líka með vinkonum sínum... En þetta var allavega alveg frábært djamm og það er langt síðan ég hef skemmt mér svona vel á djamminu! Svo á sunnudaginn fór ég með Daníel og vinahópnum hans í bíó á Norbit með Eddie Murphy :) Mæli alveg með henni :) En allavega þá held ég að ég sé búin að tjá mig nóg í bili :) Takk fyrir mig :)

Kv. Kristín Heiða

» 0 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 10
Dagsetning
7. febrúar 2012
Síðast inni
Ég var síðast inni þann 22 nóvember
Klukkan
Myndasöfn
...

"Cursors"


""